Vörur sendar til Marina

Jæja , smá fréttir..:)

Er búin að senda frá mér þónokkuð af vörum til Akureyrar, búist er við 60 skemmtiferðaskipum þangað í sumar svo einhverjir sjálfsagt falla fyrir fallegu íslensku handverki. Gaman að fá að taka þátt í þessu verkefni með öllum hinum.

Ég mæli með því að kíkja við í Marina á Akureyri, örugglega mjög gaman , ég mun allavega gera það við fyrsta tækifæri ...en verslunin opnar 1.júní..nánar á www.marina.is

En svo er ég að hanna lampa...já, loksins..:) komin smá mynd á þetta, en þróun er í gangi svo þetta lýtur samt ansi vel út...meira um það seinna :)

Sumarkveðjur í bili :)logominna


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá spennandi! Ábyggilega einhverjar fínar frúr að utan sem eiga eftir að flagga dressunum frá þér!

Svava sys (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband