Færsluflokkur: Menning og listir
1.6.2009 | 22:33
Hef opnað vefverslun http://garnbudin.is
Jæja nú fæ ég aldeilis að njóta mín í litum og áferðum :)
Takmark okkar er að hafa besta verðið á markaðnum og getum við státað okkur af lægsta verði á Létt-lopa á landinu ! einnig erum við með frábær verð á skrautgarni. Nú svo erum við með skemmtilegt úrval af allskonar garni sem ekki hefur fengist hér á landi áður :)
Ef þú ert enn að lesa...þá verður þú eiginlega að kíkja í Garnbúðina :)
Nú...í dag gerðum við samninga við Knit Denise og bjóðum við prjónana þeirra til sölu og munum við verða með besta verðið á slíkum prjónasettum. Þetta er nú draumur prjónakonunnar að eiga svona græjur :)
Svo...vertu velkomin í http://www.garnbudin.is eða Jörundarholt 9 - Akranesi (vinsamlegast hringdu á undan þér í s: 868 2750
garnbudin@garnbudin.is
kærar kveðjur !
Anna
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 01:40
Útsölustaður - Þæfðir Lampar
Valfell á Akranesi hefur til sölu og sýnis þæfðu lampana mína.
Valfell er staðsett á aðal verslunargötu Akraness ská á móti Nínu.
Svo fundust silkibolir í pokahorninu :)
ef einhverjir hafa áhuga þá sendið email á annasilfa@simnet.is
23.1.2009 | 13:06
Janúar 2009
Gleðilegt árið !
Ekkert sérstakt er á döfinni , nema ég hef verið að aðstoða fatahönnuð að útbúa efni í nýja línu hjá henni sem ég segi frá síðar...
Á nokkra boli til á lager , fann óvænt :) óunna í pokahorninu svo ef þú hefur áhuga þá bara bjalla og ég hendi í fyrir þig :) Sama verð og í fyrra á meðan byrgðir endast...
kkv. Anna Silfa
S: 899 6790
15.12.2008 | 01:30
Gleðileg jól !
Ég vil þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma að líta á vörur mínar nú um helgina, virkilega gaman að heyra viðbrögð ykkar af afrakstri mínum undanfarið:)
En nú er mín komin í jólafrí, sinna fjölskyldunni og frv. :) eins og allir :)
Eigið gleðilega jólahátíð og njótið dagsins í dag alla daga :)
16.11.2008 | 23:34
Desembermarkaður Handverks og Hönnunar
Ég mun taka þátt helgina 12 -14 desember
Sjáumst heil !
SÖLUMARKAÐUR Í DESEMBER // LAUGAVEGI 172
(VIÐ HLIÐINA Á HEKLU HF.)
Desembermarkaður
OPNUNARTÍMAR
5. des - föstudagur 16.00-20.00
6. des laugadagur 12.00-18.00
7. des sunnudagur 12.00-18.00
12. des - föstudagur 16.00-20.00
13. des laugadagur 12.00-18.00
14. des sunnudagur 12.00-18.00
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2008 | 09:52
Hotel Glymur kemur skemmtilega á óvart!
Mér var boðið að taka þátt í glæsilegu haustboði hjá Hotel Glym í Hvalfjarðarsveit og ég var alveg dolfallin yfir staðnum, hreint út sagt æðislegur! Og svo hún Hansína eigandi staðarins (og hennar maður) hún er ekkert venjuleg kona :) Ég á bara ekki til fleiri orð yfir hana en bara yndisleg og meira en það. Veitingarnar...vá! klæsilegt var þetta boð í alla staði. Frábær upplyfting á þessum miður góðum tímum, en ég get látið mér hlakka til að mæta á Hotel Glym á jólahlaðborð :) vænti þess að það verði ekki síðra og fá svo að kúra með mínum manni í rómó herbergi, það verður bara æðislegt!
En ég var ánægð með svörunina á lömpunum mínum :) þeir seldust upp! svo nú fer ég í gír að hanna fleiri....spennó.
Hansína ef þú lest þetta þá þakka ég kærlega fyrir mig og mína :) !!!
17.9.2008 | 13:38
Silkibolir
Á til þó nokkuð af bolum á lager með íþæfðri merinoull og hrásilki..
18.7.2008 | 00:33
Sýnishornin afhjúpuð...
Jæja, þá er hér smjörþefur af lampagerðinni hér til hliðar..:)
Endilega smá komment takk :)
Sjáumst heil !
8.7.2008 | 09:05
Lampar..lampar..lampar..
Góðan og blessaðan daginn :)
Nú er mín í lampastuði og agalega lukkuleg með árangurinn, vantar smá framtakssemi að henda inn myndum hér en það er í býgerð...
Annars er það að frétta af okkur að við erum flutt ...sama símanúmer !....
svo er verðrið svo gott þessa dagana að það er frábært að nudda ull í sólinni á pallinum , sápan hefur góð áhrif á brúnkuna :) þarf enga sólarlandaferð í ár :)
Ljósin í bænum , er sýning sem ég stefni að...þ.e. ef ég næ að vinna nógu marga lampa og ljós fyrir hana og grunur leikur á að lamparnir seljist jafnóðum....en gott að eiga sér draum hvort sem hann rætist í vetur eða eftir 5 ár! Gildir einu :)
26.5.2008 | 23:11
Vörur sendar til Marina
Jæja , smá fréttir..:)
Er búin að senda frá mér þónokkuð af vörum til Akureyrar, búist er við 60 skemmtiferðaskipum þangað í sumar svo einhverjir sjálfsagt falla fyrir fallegu íslensku handverki. Gaman að fá að taka þátt í þessu verkefni með öllum hinum.
Ég mæli með því að kíkja við í Marina á Akureyri, örugglega mjög gaman , ég mun allavega gera það við fyrsta tækifæri ...en verslunin opnar 1.júní..nánar á www.marina.is
En svo er ég að hanna lampa...já, loksins..:) komin smá mynd á þetta, en þróun er í gangi svo þetta lýtur samt ansi vel út...meira um það seinna :)